|
Könnun
Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
|
08.04.2009 19:33:13 / burtafklakafor
Það er nú aldeilis langt síðan ég hef skrifað hérna síðast. Ég fer bara alltaf inn á fésið. Það hefur margt breyst, ég er búin með skólann eða þar að segja grunninn. Ég er byrjuð í lærlingnum. Ég vinn í Bilka, og þessi vika er nú búin að vera aldeilis strembin, 10 tímar á mánudeginum, 9 á þriðjudeginum og svo 11 tímar í dag. Kroppurinn er alls ekkert vanur þessu, Ég rokkaði prófunum mínu og svo 2 dögum seinna hoppaði ég upp í flugvél og heimsótti heimalandið. Það var svakalega gaman að koma heim og hitta fólkið. Sérstaklega ömmu, ég hef ekki séð hana í svo langan tíma. Takk fyrir allar skonsurnar og frábæra ömmu matinn elsku amma. Ég gaf systu vægt hjartaáfall þegar ég mætti upp á Brún, hún öskraði ástöfum ,, ég trúi þessu ekki" það var svakalega fyndið. Ég gaf Arnari álíka shock þegar ég kýldi hann í öxlina þegar hann var að borða á Olís í Borganesi þau tvö yngstu voru líka hissa, Hafþór klápti á mig og sagði "Hvað er þú að gera hér", en Tinna kallaði ,,ég knúsa fyrst" og rauk í fangið á mér. Snorri varð alveg jafn hissa. Ég sakna þeirra  Það var æði að komast heim til mömmu og pabba, mamma sagði mér að pabbi hafi sagt við hana þegar hann vissi að ég var á leiðinni heim að honum hlakkaði til að fá mig, að hann saknaði mín hann elsku pabbi, það er svo gaman að tala við hann, við getum talað um allt í marga klukkutíma. Ég fór alltaf með mömmu í hádegismat til ömmu og svo fór ég og hjálpaði henni að bera út póstinn, það var mjög gaman að geta eytt svona mikinn tíma með henni. Ég sakna kaffihúsa og búðarrápið sem við gerðum saman, vonandi munum við hafa tíma til að gera það næst þegar ég kem. Ég náði að hitta gamla vini og fjölskyldumeðlimi sem ég hef ekki hitt lengi, leiðinlegt að ég hafði ekki meiri tíma til að hitta fleiri, kannski næst. En nú er ég komin heim á ný, Fannar beið eftir mér á leistarstöðinni með blóm í hendi. Hann var meira að segja búinn að taka til og þvo þvott myndar maður eða vel lærður ekki alveg viss 
Jæja kannski maður muni reyna að vera duglegri við skrift hérna, þar að segja ef ég er ekki alveg dauð eftir vinnuna. Ég nefnilega hjóla í vinnuna þegar ég þarf ekki að vinna nema 8 tíma. Þá er ég sko alveg dauð í lærum og rassi þá er það bara sturta og svo upp í sófa og reyna að halda augunum opnum.
Þangað til næst
»
23.01.2009 18:52:09 / burtafklakafor
Well þetta er búið að vera mjög áhugaverðir dagar. Á miðvikudag mætti ég í skólann 7:40 eins og venjulega. Við vorum að æfa okkur í að búa til mat sem við áttu síðan að búa til næsta dag. Við gerðum bara hálfa uppskryft. Uppskriftirnar mjög auðveldar þannig að allt gekk voða smooth. En ég komst samt ekki heim fyrr en hálf 17. Síðan fór maður í rúmið um kl 10 vegna þess að ég þurfti að fara á fætur 4:45 og vera mætt niður í skóla rétt fyrir 6. Dagurinn endaði á því að við sem sáum um morgunverðinn þurftum líka að sjá um hádegisverðinn og kökur og kaffi Ég kom heim aftur eftir klukkan 5 Ég var gersamlega uppgefin. Við seksfölduðum allar uppskriftir, og við vorum bara 10, þetta svakalega strembinn dagur. Fæturnir mínir boru alveg ónýtir, við göngum nefnilega í sérstökum tréklossum sem koma í veg fyrir að við rennum á blautu gólfi, en þeir eru langt frá þægilegir, ég skipti yfir í strigaskó upp úr hádeginu. Síðan var ég mætt í skólan næsta dag kl 7:40 og var í skólanum til half 2. Kennarinn leit á okkur þegar hann gekk til okkar og spurði hvort við höfðum verið að djamma alla nóttina vegna þess að við vorum svakalega migluð, hann var líka svakalega hissa að heyra hvað vorum lengi í skólanum daginn áður. Síðan fórum við inn að skera miðjustykki á svíni, reyndar skar ég tvö.
Þetta ég er gersamlega uppgefin, illt í fótunum og langar að gera nákvæmlega ekki neitt í kvöld. miðvikudagur 8 tímar, fimmtudagur 11 tímar föstudagur 6 tímar. Ég ætlað fara að mygla yfir imbanum adju
»
31.12.2008 16:56:58 / burtafklakafor
Gleðilegt nýtt ár
Takk fyrir það gamla
»
05.12.2008 21:23:58 / burtafklakafor
Það hefur ekki farið framhjá neinum að jólin er á næsta leiti, við fengum það skemmtilega verkefni í skólanum í dag, á milli þess að flaka fisk og steikja, læra 5 mismunandi aðferðir til að gera sósu, gera svo eitthvað með egg og vaska upp eftir okkur og einhverja nemendur sem komu í skólann til að læra að steikja hamborgara og pönnsur, að skreyta jólatréð Ég var pínu þreytt þegar ég kom heim.
Við þurftum að flaka flatfisk eða þar að segja rauðsprettu í skólanum í dag. Ég var sú eina sem er með reynslu í flökun svo ég var bara í því að aðstoða hina, hjálpa þeim að ná roðinu af og svo að ná beinunum úr. Síðan þegar það var búið þurfti ég að skella mér í sósurnar. Danir eru með undaleg nöfn á hinum og þessum hlutum. Þetta með sósurnar er kalla sovsekørekort (hugsanlega stafað öðruvísi), aha sósuökuskírteni 
Ég er búin með 2 próf núna, ég stóðst skyndihjálpina, það var bara að ná eða falla. Ég náði síðan Hygiejne, mín fékk 12  
Síðan fór mín í sjónskoðun, sjónin hefur versan, gleraugu verða keypt í byrjun næsta árs -1.00 og -1.25 
Litla músin mín er orðin svakalega stór, fyrir þá sem vita ekki hver litla músin er þá er ég að tala um Rocky) Hann er svo mikið yndi, hann gefur okku morgunkossa um leið og vekjaraklukkan fer í gang og svo ef maður fer þá ekki á fætur nuddast hann í manni og malar og malar. Þetta er svona mal sem segir ég er svangu og vil fá að borða, og svo verður hann ennþá óþolinmóðari og malið verður að ég er SVANGUR og mig langar að fá að borða NÚNA. hihi algört rassgat.
Við erum búin að kaupa allar jólagjafir fyrir fólkið á klakanum og í USA. Úff þetta voru margar jólagjafir. Ég þurfti að fá vinkonu mína til að skutla mér niður á höfn, ég sendi þær með Eimskip. Við viltumst smá á höfninni, það var myrkur og ekkert merkt, þeir eru nefnilega enn að byggja þar, allt voða nýtt. En við fundum þetta á endanum og ekki seinna vænna, þeir lokuðu skrifstofunni 15 mín eftir að ég fór, úff 
En annars gengur allt sinn vanagang hér hjá okkur, við erum hress og kát og erum að sigla inn í jólaskapið, við ætlum að kaupa jólagjafir og gera jólaþrifin á morgun.
Jólakveðjur til allra
  
»
30.10.2008 17:49:16 / burtafklakafor
Indefence.is
Skrifið undir og styðjið Íslendinga í baráttunni
gegn Gordon Brown og bresku ríkisstjórninni.
Mr. Brown we are not terrorists!!
»
02.10.2008 19:58:43 / burtafklakafor
Jæja ég er komin í nýjan skóla og í nýtt nám. Ég byrja þann 13 október í Århus tekniske skole. Ég fór og talaði við námsráðgjafann og var skráð á staðnum. Ég er að fara í nám sem heitir Butikslagter. Ég byrja síðan eftir áramót að vinna við þetta. Vegna þess að ég hef svo mikla reynslu í þessu þá er námið bara 2 ár og það hjálpar líka að vera búin með stúdentinn. Fæ heilan helling metið sem er alveg frábært. Ég þarf að kaupa föt sem ég á að vera í í skólanum. Þetta eru bara svona týpisk vinnu föt, með nafninu mínu á. En annars er bara ekki mikið að frétta, ég er orðin rauðhærð og er byrjuð að hjóla aftur og farin að stunda Thai boxning og Kick box. Rocky aka litla músin mín er samur við sig, eltir mann um allt eins og lítill hundur, elskar knús og kossa. Allgjört rassgat. Fannar er í láni hjá vinnunni, hann er að vinna annarsstaðar í Århus, vegna þess að það vantar fólk þar. Honum líkar vel, þekkir marga þar en er ósáttur með starfsmanna aðstöðuna, sem er engin. Annars er bara allt gott að frétta héðan. En hvernig væri nú að commenta pínu, það koma allt að 12 á síðuna á dag en engin comment En þangað til næst, adju
»
19.09.2008 14:09:52 / burtafklakafor
Þegar mamma og pabbi voru hérna, fórum við í Bilka saman. Þegar við gengum inn kemur kona að mér frá simaborðinu sem maður gengur framhjá á leiðinni inn, hún setur kassa af síma á hausinn sinn og segir við mig að ef kassinn dettur af hausnun hennar á næstu 10 sek má ég eiga símann. Ég náttúrulega orðlaus starði bara á hana . Hún síðan lætur kassann detta og segir gjörðu svo vel, nýr sími handa þér. Ég spurði hvað ég þyrfti að borga og hún sagði að ég þurfti ekki að borga neitt. Ég fékk síðan að velja úr 4 mismunandi símum. Ég fékk nýjan síma frítt og engin áskrift sem er alveg FRÁBÆRT Alveg magnað
»
03.09.2008 22:04:47 / burtafklakafor
Tinna Rós er nú farin heim, hún dvaldi hjá okkur í einn mánuð. Það var alveg rosalega gaman að hafa hana. Kolla sys kom síðan með strákana til DK og það var farið í Tivolí Friheden, Djurs Sommerland og Fårup Sommerland. Og ég var dregin í alla rússíbanana mörgum sinnum og þá aðalega af henni Tinnu Rós. Og ástæða þess að ég fór með í alla garðana var vegna þess að hún systir mín er ekki það hrifin af rússíbönum og sendi mig í staðin. Mér var pínu illt í maganum þegar haldið var heim á leið í enda hvers dags. Kolla og strákarnir og Ásta frænka hjálpuðu okkur Fannari með fluttningana og við hefðum ekki getað gert þetta án þeirra. Þúsund þakkir Kolla og co fór síðan heim 19 ágúst.Stofan og svefnherbergið okkar var málað síðustu helgi. Íbúðin er öll að koma til. Síðan koma mamma og pabbi næsta þriðjudag í heimsókn. Þau ætla að koma með gómsætt íslenskt lambalæri og eitt stykki pönnukökupönnu.þangað til næst, farvell
»
09.08.2008 14:59:59 / burtafklakafor
Það er svosum ekki mikið að frétta, ég er búin að vera að skottast með Tinnu hingað og þangað um bæinn.Við erum búin að fá kisuna okkar, hann er alveg yndislegur. Hann hvæsir aldrei eða klórar. Hann bara leikur sér að öllu og kúrar síðan í fanginu þínu. Hann fékk nafnið Rocky Balboa við köllum hann Rocky.Kolla og strákarnir koma á miðvikudag til DK og síðan til okkar á fimmtudag. Við fáum lyklana af nýju íbúðinni á fimmtudag og fluttningar síðan næstu helgi.Adios
»
25.07.2008 10:16:29 / burtafklakafor
Jæja, þá erum við skötuhjúin kom aftur til DK. Tinna kom með okkur.
Við áttu frábæra ferð á heimahaganna, ég sýndi stelpunum eins mikið og hægt var á þeim tíma sem við höfðum og síðan fengum við Jeanette tattoo saman. Það var keyrt mjöööög mikið. Fannar var fyrir norðan og vestan mest allan tíman, og haldið var fjölskyldumót hjá systur hans fyrir vestan. Fannar hefur ekki komið til Íslands í tæplega 2 ár. Ég fór síðan vestur og síðan norður og svo aftur vestur þegar stelpurnar fóru aftur til DK
Ég náði að hitta Lilju, Sigrúnu, Ernu, Þórhöllu og svo fjölskylduna. Það var farið í Bláa Lónið, Gullfoss og Geysi, Seljalandsfoss, sögusafnið á Hvolsvelli, farið á hestbak, Deildartunguhver, Barnafossar og Hraunfossar og Glym. Og svo var Reykjavik skoðuð, spilað pool á Kollu bar og horft á sólina "setjast" í Garði.
Það var rosalega gaman að komast heim á klakan í 3 vikur, en núna þarf ég að hafa upp á kössum vegna þess að ég er að flytja, fæ íbúðina þann 15 ágúst. Kolla, Arnar, Hafþór og Tinna ætla að hjálpa við fluttningana. Síðan er fjölskyldunni að fjölga......................................................við erum að fá okkur litlann kettling, ég fæ myndir af kettlingunum í kvöld og þá á að ákveða hver þeirra mun koma til okkar. Ég mun setja mynd af honum hér inná þegar hann kemur til okkar.
På gensyn
»
29.06.2008 11:36:35 / burtafklakafor
Við fórum að skoða íbúð í gærkvöldi. Okkur leyst mjög vel á hana og við vonumst til að fá þessa íbúð. En nóg um það Á meðan við biðum eftir strætó hjóluðu tveir hjólreiðakappa framhjá okkur, og voru það engir aðrir en Batman og Robin. Okkur leið strax mikkkklu betur vitandi að Batman og Robin hjóla um hverfið, það getur ekki verið að það sé mikið um glæpi í þessu hverfi
»
15.06.2008 15:46:44 / burtafklakafor
Well....
Ég hélt upp á afmælisdaginn með Ástu frænku, Kristjönu og Gulla, við horfuð á AGF spila. Það var mjög gaman. Fannar hvarf fljótlega inn í klúbbhúsið, honum var svo heitt. Aníta og Kristjana léku sér saman. Ég spjallaði við Ástu og klappaði ótrúlega stætum hundi sem hún var að passa.
Ég síðan hélt upp á afmælið með vinkonum mínum viku seinna, við fórum út að borða og svo í bíó. Við fórum á frumsýningu Sex and the City.
Það hefur ekki rignt í heilan mánum og svo í fyrradag opnaðist himininn og það hefur eiginlega ekki hætt síðan. Hún kemur í gusum, og þá svakalegum gusum. Eina stundina rignir alveg brjálæðislega og hina er sól, en það eru bara svona 10 - 20 mín á milli skúranna.
Síðan fór ég í próf síðasta föstudag, það var haldið í skautahöll. Síðan fer ég í síðasta prófið mitt á morgun og því lýkur á miðvikudag.
Já þetta er það sem er búið að vera að gerast hjá okkur. Og já við erum enn að bíða eftir að fá nýja íbúð. Ég sótti um íbúð sem er stærri en er í sama hverfi og við erum að vonast eftir að fá hana fljótlega, við erum nr 1 á listanum. Þannig að ef íbúð losnar þá fáum við hana.
Lengra verður það ekki að sinni......
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 9735
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 8 apríl
|